Jólaljósin loga,
laða, seiða og toga
frið í friðleysið;
ljós í ljósleysið.
Grýlukertin glóa,
nú gæti farið að snjóa.
Jólin gætu jafnvel orðið hvít.
Enn er jörðin auð,
ekki samt rauð.
– Jólin eru ekki
orðin sjálfum sér lík.
Engan ég því miður þekki
sem þarf nýja flík…
Segir jólakötturinn,
það gamla fatafrík.